Rán í Húnabúð á Blönduósi

Sl. laugardagsmorgun var rán framið í Húnabúð á Blönduósi um ellefu leytið. Að sögn Sigurlaugar Gísladóttur, eiganda búðarinnar, voru þjófarnir tveir og að erlendu bergi brotnir. Á fésbókarsíðu búðarinnar segir Sigurlaug að stolið hafi verið öllu úr kassanum, eða um 40 þúsund krónum, sem og veski hennar sem innihélt um 30 þúsund krónur og öll hennar kort og skilríki.

"Þetta voru tveir ungir menn, vel klæddir og með franskan hreim. Dökkærðir og sólbrúnir, um 170 cm á hæð. Annar með dökka derhúfu." Húnbúð er lítil búð sem verslar með handverk fólks úr héraði auk leikfanga og klæða. "Sorglegt að vita af svona fólki á ferðinni," segir Sigurlaug að lokum.
Samkvæmt frétt á Vísi.is er búið að handtaka tvo menn sem eru grunaðir um þjófnaðinn. Þeir voru handteknir í nágrenni Hafnar í Hornafirði á þriðjudaginn. Jafnframt er verið að skoða svipuð mál frá Sauðárkróki og Eskifirði sem mennirnir eru taldir tengjast.

Fleiri fréttir