Rangt netfang á Fab Lab námskeið

Fyrsta námskeið Fab Lab á Sauðárkróki verður haldið á morgun 1. mars kl. 20:00 þegar kynntir verða möguleikar í notkun hönnunarhugbúnaðar fyrir Fab Lab. Í auglýsingum var rangt netfang skráð þar sem .is var sett þar sem átti að vera .com.

Námskeiðið verður haldið í Verknámshúsi FNV og kostar kr. 1500 og segir Valur Valsson starfsmaður Fab Lab það vera fyrir alla. Fólk þarf ekki að kunna mikið á tölvur en kostur að getað ræst hana. Valur segir að fjöldi fólks sé þegar búið að skrá sig og ætla má að einhverjir hafi sent sína umsókn á rangt netfang þannig að líklega verður haldið annað námskeið á fimmtudag og hvetur Valur sem flesta til að skrá sig. Þeir sem sendu á rangt netfang þurfa að senda aftur á hið rétta.

Skráning fer fram á netfanginu fablabsaudarkrokur@gmail.com

Fleiri fréttir