Rannsóknarverkefni um ferðaþjónustu á Norðurlandi
Markaðsstofa Norðurlands, Rannsóknarmiðstöð ferðamála og Háskólinn á Hólum, undirrituðu sl. mánudag samning sín á milli um rannsóknarverkefni á áfangstaðnum Norðurlandi. Rannsóknin hefur það meginmarkmið að skoða ýmsa þætti sem varða markaðssetningu Norðurlands og þá markhópa sem sækja svæðið heim. Verkefnið er það stærsta sem ráðist hefur verið í hvað rannsóknir á ferðaþjónustu á Norðurlandi snertir og niðurstöðurnar gætu orðið fordæmisgefandi fyrir aðrar rannsóknir í landshlutanum að því er greint er frá á vef Markaðsstofu Norðurlands.
Verkefnið er stutt af Eyþingi og Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í gegnum Sóknaráætlanir, og mun því ná yfir allt Norðurland. Stjórnandi verkefnisins hjá Markaðsstofu Norðurlands er Björn H. Reynisson.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður RMF, og Laufey Haraldsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar í Háskólanum á Hólum, skrifuðu undir samninginn.
Stefnt er að því að kynna niðurstöðurnar í lok ársins 2019. Lögð er áhersla á að ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi geti nýtt sér niðurstöðurnar í starfi sínu þannig að verkefnið geti stuðlað að hnitmiðaðri og skilvirkari markaðssetningu á Norðurlandi og um leið eflt fagmennsku í ferðaþjónustu enn frekar.