Rannsóknir efldar á vatnasviði Blöndu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
29.05.2025
kl. 10.18

Það eru margir sem hafa átt góða daga við veiðar í Blöndu. Upp á síðkastið hafa menn þó verið pínu skaffaðir með veiðina. MYND: STEBBI LÍSU
Landsvirkjun og Veiðifélag Svartár og Blöndu komust í vetur að samkomulagi um kostun Landsvirkjunar á vöktun seiðastofna í báðum ám. Í frétt Húnahornsins segir að Landsvirkjun muni einnig kosta úttekt Hafrannsóknastofnunar á ástandi laxastofnsins í Blöndu. Þá er fyrirhuguð rannsókn á fiskstofnum í bergvatnsánum uppi á Auðkúluheiði og Eyvindarstaðaheiði sem falla til Blöndulóns.