Ráslisti fyrsta móts KS-deildarinnar

KS-Deildinni fer af stað með fjórgangi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki nk. miðvikudagskvöld. „Margir góðir hestar eru skráðir og ber þar kannski hæst sigurvegara síðustu tveggja ára í meistaradeildinni fyrir sunnan, Hugleik frá Galtanesi en nú með nýjan knapa Valdimar Bergstað,“ segir í fréttatilkynningu frá KS-Deildinni.

„Ný í deildina kemur Lilja Pálmadóttir með hinn öfluga fjórgangshest Móa frá Hjaltastöðum. Auk þessara tveggja eru margir athyglisverðir hestar sem gaman verður að fylgjast með,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Keppni hefst kl. 20:00.

Ráslistinn er eftirfarandi:

  1. Hanna Rún Ingibergsdóttir/ Íbess-Gæðingur Nótt frá Sörlatungu
  2. Teitur Árnason/ Top Reiter Kúnst frá Ytri-Skógum
  3. Barbara Wenzl/Draupnir-Þúfur Hrafnfinnur frá Sörlatungu
  4. Valdimar Bergsstað/Hrímnir Hugleikur frá Galtanesi
  5. Guðmundur K Tryggvason/ Efri-Rauðalækur-Lífland Rósalín frá E-Rauðalæk
  6. Bjarni Jónasson/ Hofstorfan-66°norður Roði frá Garði
  7. Þorsteinn Björnsson /Draupnir-Þúfur Króna frá Hólum
  8. Agnar Þór Magnússon/ Efri-Rauðalækur-Lífland Saga frá Skriðu
  9. Þórarinn Eymundsson/ Hrímnir Taktur frá Varmalæk
  10. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir/ Top Reiter Óði-Blesi frá Lundi
  11. Jóhann B. Magnússon/ Íbess-Gæðingur Mynd frá Bessastöðum
  12. Lilja Pálmadóttir/ Hofstorfan-66°norður Mói frá Hjaltastöðum
  13. Fanney Dögg Indriðadóttir/ Top Reiter Brúney frá Grafarkoti
  14. Baldvin Ari Guðlaugsson/ Efri-Rauðalækur-Lífland Öngull frá E-Rauðalæk
  15. Líney M. Hjálmarsdóttir/Hrímnir Völsungur frá Húsavík
  16. Elvar E Einarsson/ Hofstorfan-66°norður Gjöf frá Sjávarborg
  17. Anna Kristín Friðriksdóttir/ Íbess-Gæðingur Glaður frá Grund
  18. Mette Mannseth /Draupnir-Þúfur Verdí frá Torfunesi

Fleiri fréttir