Rauði þráðurinn í gegnum lífið

Þegar Steinar er spurður hvort hann hafi alltaf verið hundamaður svarar hann því játandi. „Ég hef alltaf verið í kringum dýr. Það voru alltaf dýr á heimilinu og fjölskyldan var í hestum. Og svo hundarnir, þeir hafa verið rauði þráðurinn í gegnum lífið,“ segir hann glaður í bragði. Mynd/BÞ
Þegar Steinar er spurður hvort hann hafi alltaf verið hundamaður svarar hann því játandi. „Ég hef alltaf verið í kringum dýr. Það voru alltaf dýr á heimilinu og fjölskyldan var í hestum. Og svo hundarnir, þeir hafa verið rauði þráðurinn í gegnum lífið,“ segir hann glaður í bragði. Mynd/BÞ

Allt frá barnæsku hefur Steinar Gunnarsson haft þörf fyrir að hafa í nógu að snúast og mikið fyrir stafni, „var svolítið ofvirkur og uppátækjasamur“, eins og hann orðar það sjálfur. Það má segja að það sama sé uppi á teningnum hjá honum á fullorðinsárum. Hann starfar sem lögreglumaður og er einn fremsti hundaþjálfari landsins, auk þess sem hann er á fullu í tónlistinni og nú fyrir skemmstu gaf hann út geisladiskinn Vinir, ásamt æskuvini sínum Bjarna Tryggva. 

Steinar segir margt einstakt við vinskap þeirra Bjarna. Þeir eru báðir uppaldir á Norðfirði og kynntust á unglingsárunum, Bjarni er nokkuð eldri. „Við urðum strax miklir vinir og við spiluðum mikið saman. Svo fór Bjarni suður og gaf út sólóplötu, við undirleik Grafík. Eftir það gerðust hlutirnir hratt hjá honum, og á einni nóttu var Bjarni orðinn poppstjarna. Hann tók aðra stefnu í lífinu, lenti í neyslu og óreglu en náði sér uppúr því eins og hetja. Leiðir okkar skildu en við vorum samt alltaf áfram vinir, hann fór þessa leið og ég fór í lögguna, eins ólíkt og hægt væri, en eins ótrúlegt og það er þá vorum við samt alltaf áfram vinir. Við héldum lífstílum okkar aðskildum og gátum hist í gegnum tónlistina og vináttuna.“  

Steinar er í ítarlegu viðtali í Feyki vikunnar og þar segir hann frá þeim ótal járnum sem hann hefur haft í eldinum í gegnum tíðina og hvernig hann kom til Skagafjarðar í gegnum tónlistina. 

Fleiri fréttir