Regnboginn býður fram í Norðvesturkjördæmi
Regnboginn – framboð fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbæra þróun hefur fengið listabókstafinn J. Boðið verður fram í Norðvesturkjördæmi undir merki listans við næstu Alþingiskosningar 27. apríl. Jón Bjarnason alþingismaður og fyrrv. sjávarútvegs og landbúnaðarráðaherra mun leiða listann.
Fyrstu 5 sæti listans skipa:
1. Jón Bjarnason alþingismaður og fyrrv. sjávarútvegs og landbúnaðarráðaherra
2. Arnþrúður Heimisdóttir tamningakona og kennari, Langhúsum Fljótum
3. Barbara Ósk Guðbjartsdóttir tónlistamaður og bóndi Miðhúsum Strandabyggð
4. Gísli Árnason framhaldsskólakennari, Sauðárkróki
5. Sigurður Oddur Ragnarsson ferðaþjónustubóndi, Oddstöðum Borgarfirði