Reiðvegagerð fyrirhuguð í A-Hún
Reiðveganefnd hestamannafélagsins Neista í Austur-Húnavatnssýslu hefur sent erindi til skipulags-, byggingar og veitunefndar Blönduósbæjar um lagningu reiðvegar frá Svínvetningabraut áleiðis að veiðihúsi Laxár á Ásum.
Einnig eru upp áform um að bæta reiðveg sem fyrir er og liggur frá Svínvetningabraut að landamerkjagirðingu og myndi tengjast hinni nýju leið.
Skipulags-, byggingar- og veitunefndin tók erindi reiðveganefndar fyrir á fundi sínum á fimmtudaginn og í fundargerð segir að samkvæmt gildandi aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 séu skilgreindar reiðleiðir og samþykkir nefndin uppbyggingu þeirra í samræmi við skipulag.