Rekstrargrundvöllur Styrktarsjóðsballsins brostinn
Styrktarsjóðsballið á Blönduósi hefur verið fastur liður í tilveru Húnvetninga um árabil með þá hugsjón að safna fyrir góðum málefnum sem og að skemmta sér og öðrum. Styrktarsjóður Húnvetninga var stofnaður árið 1974 með samstilltu átaki nokkurra félaga á Blönduósi og nágrenni og hefur ballið verið stór þáttur söfnunarinnar, en nú verður breyting á.
Stjórn styrktarsjóðsins hefur tekið þá ákvörðun að leggja niður þessa árlegu hefð og er ástæðan of mikill kostnaður sem fylgir dansleikjum. Í Glugganum segir að það sé einfaldlega lítið upp úr þessu að hafa fyrir oft mikla vinnu.
„Hér áður fyrr sáu stærstu fyrirtækin okkar hér á Blönduósi, sér akk í því að halda sínar árshátíðir á styrktarsjóðsböllunum en því miður er ekki áhugi fyrir því lengur. Með því teljum við allan rekstrargrundvöll vera farinn enda þarf einfaldlega það marga dansleikjagesti til að þetta borgi sig að það er ekki forsvaranlegt að styrktarsjóðurinn þurfi hugsanlega að taka á
sig tap,“ segir á Húnahorninu. Þrátt fyrir að böllin leggist af verður sjóðurinn með sitt árlega happdrætti og er það von aðstandenda hans að Húnvetningar verði duglegir að kaupa miða enda vinningar veglegir og styrktir af heimamönnum. Einnig geta menn lagt sjóðnum til fjármuni sem koma í góðarþarfir. Reikningsnúmerið er: 307 – 26 – 6509 kt.650997-2479