Rekstrarniðurstaðan 2,5 millj.kr neikvæðari en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir

Ársreikningur Blönduósbæjar 2012 tekinn til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi Blönduósbæjar í síðustu viku. Þar kom fram að rekstrarniðurstaða ársins 2012 fyrir A og B hluta er neikvæð upp á 43,5 millj.kr að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að rekstarniðurstaðan yrði neikvæð upp á 41,0 millj.kr.

Það var Þorsteinn G. Þorsteinsson, frá KPMG, endurskoðandi bæjarins og Valgerður Hilmarsdóttir, fjármálastjóri sem fóru yfir og útskýrðu helstu liði ársreikningsins á fundinum. Helstu tölur úr ársreikningi voru þessar:

Bókuð útgjöld eru 601,0 millj.kr fyrir afskriftir en fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir útgjöldum upp á 585,4 millj.kr. Bókaðar tekjur eru 678,6 millj.kr en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir tekjum upp á 678,5 millj.kr.

Niðurstaða úr rekstri er 77,5 millj.kr tekjur umfram gjöld en fjárhagsáætlun án afskrifta og fjármagnsliða gerir ráð fyrir að 75,0 millj.kr tekjum umfram útgjöld.

Í fundargerð kemur fram að samþykkt var að vísa ársreikningi Blönduósbæjar 2012 til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.

Fleiri fréttir