Rekstraryfirlit Blönduósbæjar fyrstu 6 mánuði ársins

Gjöld Blönduósbæjar voru 3,2 millj. kr. umfram tekjur á fyrstu 6 mánuðum ársins. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs sem haldinn var 30. ágúst sl.

Í fundargerð 59. fundar segir að samkvæmt rekstaryfirliti sem var til umfjöllunar á fundinum voru bókaðar tekjur fyrstu 6 mánuði ársins í A-hluta eru alls 370,0 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir tekjum að upphæð 790,4 millj. kr. allt árið 2012.

Bókuð útgjöld fyrstu 6 mánuði ársins í A-hluta eru 373,2 millj. kr. en fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir útgjöldum upp á 775,6 millj. kr. allt árið.

Niðurstaða úr rekstri fyrstu 6 mánuði er 3,2 millj. kr. gjöld umfram tekjur en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 14,8 millj. kr. tekjum umfram útgjöld í A-hluta. Fjárfestingar fyrstu 6 mánuði ársins eru 4,2 millj. kr. en gert er ráð fyrir 8 millj. kr í fjárfestingar árið 2012.

Fleiri fréttir