Rekstur götuljósa
Viðhaldsgjald götulýsingar hækkaði um 7,5% um síðustu áramót, um leið og verðskrá Rarik fyrir dreifingu hækkaði. Til viðbótar þeirri hækkun hefur verið ákveðið að hækka viðhaldsgjaldið aftur um 7,5% þann 1. júlí 2012. Vegna áformaðra hækkana hefur Rarik ákveðið að bjóða veghöldurum, sem þess óska, að yfirtaka rekstur götuljósa og sjá um hann sjálfir.
Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar var bréf Rarik um málið tekið fyrir og bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um hvernig önnur sveitarfélög ætla að bregðast við erindinu.