Réttarball í Húnaveri
Slegið verður upp dúndur réttarballi í Húnaveri laugardaginn 7. september næstkomandi. Stuðhljómsveitin Trukkarnir sér um að halda uppi brjáluðu stuði fram á rauða nótt. Í fréttatilkynningu frá aðstandendum dansleikjarins er eindregið mælt með því að sveitungar jafnt sem aðrir skemmtanaþyrstir haldi upp á daginn og smali sér saman á réttarball.
Húsið opnar kl 22:00 og er aldurstakmark 16 ára.