Réttir á Norðurlandi vestra

Göngur og réttir eru nú framundan, tími þar sem mikið er um að vera og í nógu að snúast í sveitum landsins. Fyrstu réttirnar á Norðurlandi vestra eru afstaðnar því segja má að bændur í Blöndudal hafi tekið forskot á sæluna með því að rétta í Rugludalsrétt sl. laugardag og einnig var réttað í Hvammsrétt og í Beinakeldurétt á sunnudag. Um næstu helgi verður svo smalað víða um sveitir og réttað á fjölmörgum stöðum á svæðinu, bæði þá og um næstu helgi á eftir.
Feykir hefur tekið saman lista yfir réttir á Norðurlandi vestra sem unninn er upp úr Bændablaðinu. Þar er tekið fram að villur geti alltaf slæðist inn í lista af þessu tagi og eins geti veðráttan átt þátt í að breyta fyrirætlunum varðandi göngur og réttir. Það er alltaf gaman að skoða myndir úr réttum og þætti Feykir því vænt um ef lesendur sendu blaðinu myndir til birtingar.
Húnaþing vestra
Hamarsrétt á Vatnsnesi laugardag 14. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði laugardag 7. sept. kl. 9:00.
Hvalsárrétt í Hrútafirði laugardag 14. sept. kl. 13:00.
Miðfjarðarrétt laugardag 7. sept. kl. 9:00.
Valdarásrétt í Fitjárdal föstudag 6. sept. kl. 9:00.
Víðidalstungurétt í Víðidal laugardag 7. sept. kl. 10:00.
Þverárrétt í Vesturhópi laugardag 14. sept.
Austur-Húnavatnssýsla
Auðkúlurétt við Svínavatn laugardag 7. sept. kl. 8:00.
Beinakeldurétt sunnudag 1. sept. kl. 9:00.
Fossárrétt laugardag 7. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð sunnudag 8. sept. kl. 16:00.
Kjalarlandsrétt laugardag 7. sept.
Rugludalsrétt í Blöndudal laugardag 31. ágúst kl. 16:00.
Skrapatungurétt í Laxárdal sunnudag 8. sept. kl. 9:00.
Stafnsrétt í Svartárdal laugardaginn 7. sept. kl. 8:30.
Sveinsstaðarétt sunnudag 8. sept. kl. 10:00.
Undirfellsrétt í Vatnsdal föstudag 6. sept. kl. 12:30 og laugardag 7. sept kl. 9:00.
Skagafjörður
Árhólarétt í Unadal laugardag 14. sept. um kl. 14:00.
Deildardalsrétt laugardag 7. sept.
Flókadalsrétt í Fljótum sunnudag 15. sept.
Hlíðarrétt í Vesturdal sunnudag 15. sept.
Hofsrétt í Vesturdal laugardag 14. sept.
Holtsrétt í Fljótum laugardag 14. sept.
Hraunarétt í Fljótum föstudag 6. sept.
Kleifnarétt í Fljótum laugardag 7. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal sunnudag 8. sept.
Mælifellsrétt sunnudag 8. sept.
Sauðárkróksrétt laugardag 7. sept.
Selnesrétt á Skaga laugardag 7. sept. – seinni réttir laugardag 14. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð mánudag 9. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum sunnudag 8. sept. kl. 10:00
Skálárrétt í Sléttuhlíð laugardag 14. sept.
Staðarrétt sunnudag 8. sept.
Stíflurétt í Fljótum föstudag 13. sept.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.