Réttir og göngur helgarinnar - uppfært
Mikið er um að vera í réttum og smalamennsku um þessar mundir. Um helgina verða fjárréttir víða í Skagafirði og í Húnavatnssýslum.
Réttir í Skagafirði
Í dag, föstudag, verður réttað í Stíflurétt í Fljótum.
Á morgun, laugardaginn 10. september, verður mikið um að vera. Þá verða réttir í Sauðárkróksrétt, Skarðarétt, Selárrétt á Skaga, Árhólarétt í Unadal og Holtsrétt í Fljótum.
Á laugardagskvöldið verður réttarball í Félagsheimilinu Ketilási fyrir þá sem vilja „upplifa ekta sveitta sveita stemmingu,“ eins og fram kemur á fésbókarsíðu viðburðarins. Þar mun hljómsveitin Upplyfting stíga á svið og spila fram á nótt. Ballið byrjar kl. 23 og er 16 ára aldurstakmark.
Fjárréttir verða í Staðarrétt og Mælifellsrétt á sunnudaginn, 11. september.
Réttir í Austur-Húnavatnssýslu
Í dag og á morgun, laugardag, verða réttir í Undirfellsrétt en í Skrapatungurétt verður réttað bæði laugardag og sunnudag. Á morgun verður smalað í réttir í Auðkúlurétt, Fossárrétt og Stafnsrétt en á sunnudag í Hlíðarrétt.
Réttir í Húnaþingi vestra
Fjárréttir verða á morgun í Valdarásrétt í Fitjárdal og á sunnudaginn í Víðidalstungurétt.
Réttardansleikur verður í Víðihlíð á laugardagskvöldið þar sem hljómsveitin Strákarnir okkar sjá um fjörið. Ballið hefst kl. 23 og er 16 ára aldurstakmark.