Rigning eða súld næstu daga
Hæg breytileg átt og léttskýjað er á Norðurlandi vestra um þessar mundir en samkvæmt Veðurstofu Íslands verður sunnan eða suðvestan 3-8 m/s í dag. Þykknar upp í kvöld.
Á morgun verður sunnan 8-13 og rigning eða súld með köflum. Hiti 5 til 10 stig að deginum, en vægt frost í innsveitum um nóttina.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Austlæg átt, 8-13 m/s og talsverð rigning SA-lands, en annars dálítil væta með köflum. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast N-lands.
Á þriðjudag:
Norðaustlæg átt og rigning á A-verðu landinu, en annars úrkomulítið. Fremur milt veður.
Á miðvikudag:
Hæg breytileg átt og stöku skúrir og kólnar heldur.