Ríkissjóður tapar líka

-Það er merkilegt hve sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur gjörsamlega snúist upp í andhverfu sína. Hún var sett fram með tiltekin markmið að leiðarljósi. Nú er komið  í ljós að stefnan  vinnur í veigamestu atriðunum gegn þessum markmiðum, segir Einar K. Guðfinnsson Alþingismaður í aðsendri grein hér á Feyki. -Þetta er ótrúlegt klúður og sýnir í raun fullkomið gjaldþrot þeirrar hugmyndafræði í sjávarútvegsmálum sem ríkisstjórnin lagði af stað með.

Einar segir að í fyrstunni hafi ríkisstjórnin boðað fyrningu  aflaheimilda á 20 árum en í úttekt sem  Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri gerði kemur í ljós að þessi sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar myndi leiða til gjaldþrots helmings sjávarútvegsfyrirtækja í landinu.

Ríkissjóður tapar
-Leiðarstefið í sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar hefur verið að eigandi fiskveiðiauðlindarinnar sé ríkið – og um það er ekki mikill ágreiningur. En síðan hefur verið sagt að  eðlilegt sé að eigandi auðlindarinnar fái sem mestan afrakstur af nýtingu hennar. Hafa hagfræðingar reiknað út það sem kallað hefur verið auðlindaarður og á þeim grundvelli hafa síðan verði settar fram tillögur af hálfu ríkisstjórnarinnar um að  stærri hluti hans renni til eigandans, ríkisins, í gegn um ríkissjóð, með meiri gjaldtöku af útgerðum. En þá gerist það ótrúlega. Hið nýja fyrirkomulag sem ríkisstjórnin vill innleiða er svo vitlaust og óhagkvæmt að afrakstur ríkisins af fiskveiðiauðlindinni mun minnka, segir Einar sem telur að stjórnvöld séu að skjóta sig í fótinn eða eins og hann segir í greininni; Hefja eiginlega skothríð á sinn eigin fót.

Greinina er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir