Ríkisstjórnin úthlutar 850 milljónum til brýnna verkefna á ferðamannastöðum
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 850 milljónum til brýnna verkefna á ferðamannastöðum. Um er að ræða 104 verkefni á 51 stað á landinu, auk þess sem viðbótafé verður varið til aukinnar landvörslu um allt land. Af þessum verkefnum eru tíu verkefni á níu stöðum á Norðurlandi vestra.
Verkefnin eru af ýmsum toga en megináhersla er lögð á framkvæmdir vegna göngustíga, útsýnispalla, bílastæða og salernisaðstöðu. Kallað var eftir tillögum þeirra stofnana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjölfarið var verkefnum forgangsraðað í samræmi við faglegt mat á því hver þörfin væri. Fjármagnið mun renna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem mun annast umsýslu og eftirlit með verkefnaáætluninni.
Eftirfarandi var úthlutað til verkefna og staða á Norðurlandi vestra:
Borgarvirki 3.000.000
-Skipulagsvinna fyrir svæðið í heild sem miðaði að því að verja minjarnar
Glaumbær í Skagafirði 5.000.000
-Göngustígur frá bílastæði að bænum og umhverfis hann
Hegranesþingstaður 3.000.000
-Þennan merka sögustað þyrfti að skipuleggja sem eina heild
Hveravellir 2.000.000
-Viðhald á göngustígum
Kattarauga 1.900.000
-Aðkomuskilti og útsýnispallur
Nýi bær á Hólum í Hjaltadal 2.000.000
-Aukin þjónusta við ferðamenn
Stóru-Akrar í Skagafirði 3.500.000
-Girðing og fleira
Þingeyrar og Vatnsdalur 3.000.000
-Bæta þarf upplýsingagjöf, setja upp leiðbeiningar, skipuleggja sem eina heild
Örlygsstaðir í Blönduhlíð 3.000.000
-Hönnun og skipulag svæðis
Í fréttatilkynningu vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins kemur fram að hafin sé vinna á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðherra við heildarstefnumótun um ferðaþjónustu í landinu og þar sé horft til fjölmargra þátta. Einnig verður unnin landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn, í samræmi við frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar er gert ráð fyrir víðtæku samstarfi stjórnvalda og hagsmunaaðila.