Risastór útilistaverk í Hrútey

Hrafnhildur eða Shoplifter eins og hún kýs að láta kalla sig.
Hrafnhildur eða Shoplifter eins og hún kýs að láta kalla sig.

Opnuð verður myndlistarsýning í Hrútey þann 3. júlí næstkomandi og verður hún opin almenningi til 28. ágúst. Það er listakonan Hrafnhildur Arnardóttir eða Shoplifter eins og hún kýs að kalla sig, sem stendur fyrir sýningunni en um er að ræða risastórt útilistaverk þar sem Shoplifter hyggst stilla náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum upp sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, samstæður eða gagnstæðar spegilmyndir.

Helstu hráefni Hrafnhildar í þessu listaverki eru nælonhár, plast og annað gerviefni, sem hún vinnur með ýmiskonar hefðbundinni textíltækni s.s. flosi, rýja, þæfingu, hnútum, fléttum og saumaskap en efnið er líka í sumum tilvikum hitað, brennt, brætt, litað eða málað. Úr þessum hráefnum býr hún til voðir, mottur, dúska, kaðla, bönd sem hún umbreytir síðan í þúfur, plöntur, skófir, blóm, runna, tré, steina, vörður, kletta, og svo framvegis.

„Þegar gengið verður um eyna verða á vegi manns lundir, flatir eða lautir sem listin hefur yfirtekið og við blasa óvæntir og ónáttúrulegir gestir í annars mjög náttúrulegu umhverfi Hrúteyjar. Þannig skapast togstreita á milli þess raunverulega í landslaginu og innrásar verka Hrafnhildar sem reyna á mjúkan og lúmskan hátt að villa á sér heimildir í ríki náttúrunnar,“ segir í umfjöllun á vefsíðu Blönduósbæjar um gjörninginn.

Hrafnhildur var fulltrúi Íslands á Feneyatvíæringnum árið 2019 og er í hópi fremstu samtímalistamanna þjóðarinnar. Líklegt er að sýning hennar í Hrútey muni vekja athygli langt út fyrir landssteinana. Blönduósbær, Textílmiðstöð Íslands – Þekkingasetur á Blönduósi og Íslandsstofa eru samstarfsaðilar verkefnisins auk þess sem það hefur hlotið styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, Myndstefi og Myndlistarsjóði.

/SMH

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir