Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag

Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag og vegna bágrar stöðu stofnsins vill Umhverfisstofnun vil benda á að sama fyrirkomulag er á rjúpnaveiðum og 2011 þar sem leyfilegir veiðidagar árið 2012 eru 9 og skiptast þeir niður á fjórar helgar.

Leyfilegt er að veiða:

  •     Föstudaginn 26. október - sunnudagsins 28. október (3 dagar)
  •     Laugardaginn 3. nóvember - sunnudaginn 4. nóvember (2 dagar)
  •     Laugardaginn 17. nóvember - sunnudaginn 18. nóvember ( 2 dagar)
  •     Laugardaginn 24. nóvember - sunnudaginn 25. nóvember (2 dagar)

„Rjúpnaskyttur eru sem fyrr hvattar til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar og ganga vel um náttúruna. Umhverfisstofnun hvetur veiðimenn til notkunar á rafrænu veiðibókinni og einnig að kynna sér vel þeir mega veiða. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti,“ segir á heimasíðu Umhverfisstofunar.

Vakin athygli á því að sölubann gildir áfram á rjúpu og öllum rjúpnaafurðum. Einnig eru veiðimenn hvattir til að aka aðeins á vegum og merktum slóðum en ekki utan þeirra.

Náttúrufræðistofnun Íslands hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpunum sem veiddar eru og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldir fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.

Náttúrufræðistofnun mun greiða sendingarkostnað sé þess óskað. Menn eru beðnir um að láta nafn sitt og heimilisfang fylgja með sýnunum þannig að hægt sé að senda þeim, sem það vilja, niðurstöður greininga úr þeirra sýni og heildarniðurstöðurnar í lokin.

Vængina má senda til:

Náttúrufræðistofnun Íslands
Urriðaholtsstæti 6-8
212 Garðabær

Fleiri fréttir