Rocky Horror frumsýnt í kvöld

Kynþokki og djarfur klæðnaður verður alls ráðandi í Bifröst næstu daga.
Kynþokki og djarfur klæðnaður verður alls ráðandi í Bifröst næstu daga.

Það fer mikið fyrir kynþokka og skrautlegum, djörfum klæðnaði í sýningu nemenda FNV um hinn mjög svo ófullkomna Rocky sem Dr. Frank N Furter reynir að fullgera. Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hafa undanfarnar vikur æft  af krafti söngleikinn Rocky Horror sem frumsýndur verður í kvöld, miðvikudag, í Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson og aðstoðarleikstjóri er Heiða Jonna Frðfinnsdóttir.

Ætla má að hinir ungu leikarar sem stíga á svið í kvöld teygi sig ansi nærri jöðrum þægindarammans þar sem bert hold, afbrigðileg hegðun og mikil nánd persónanna er alls ráðandi í verkinu jafnframt mikill söngur og ást.

Það er rík ástæða til að hvetja alla til að kíkja á þetta fræga stykki og sjá hvernig til tekst hjá leikhópi FNV.

Í Rocky Horror segir frá tveimur fyrirmyndar unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi en hjálpin gæti leynst í eina húsinu í nágrenninu, kastala Dr. Frankenstein. Þar reynist húsbóndinn vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.

Dr. Frank N Furter er niðursokkinn í vísindatilraun þar sem hann freistast til að skapa hinn fullkomna mann; Rocky. Eins og vænta má lendir unga siðsama parið í undarlegu og stórhættulegu ævintýri þar sem siðgæðinu er ögrað svo um munar.

2. sýning fimmtudaginn 17. nóvember klukkan 20:00

3. sýning laugardaginn 19. nóvember klukkan 20:00

4. sýning sunnudaginn 20. nóvember klukkan 20:00

5. sýning þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 20:00

6. sýning miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 20:00

 

Miðapantanir milli klukkan 16:00 og 18:00 í síma 455-8070. 12 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum.

Fleiri fréttir