Rocky Horror í Bifröst

Nemendur æfa Rocky Horror. Mynd tekin á æfingu í síðustu viku. PF
Nemendur æfa Rocky Horror. Mynd tekin á æfingu í síðustu viku. PF

Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hafa undanfarnar vikur æft  af krafti söngleikinn Rocky Horror sem frumsýndur verður miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 20:00. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir og aðstoðarleikstjóri er Heiða Jonna.

Í Rocky Horror segir frá tveimur fyrirmyndar unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi en hjálpin gæti leynst í eina húsinu í nágrenninu. Það er kastali Dr. Frankenstein og reynist húsbóndinn vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.

Dr. Frank N Furter er niðursokkinn í vísindatilraun þar sem hann freistast til að skapa hinn fullkomna mann; Rocky. Eins og vænta má lendir unga siðsama parið í undarlegu og stórhættulegu ævintýri.

Rocky Horror er sívinsæll söngleikur sem sýndur hefur verið um víða veröld en  Richard O’Brien skrifaði verkið árið 1973. Það var frumsýnt 19. júní sama ár í London og gekk sýningin í langan tíma. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum.

Sýningar verða sem hér segir:

Frumsýnt miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 20:00

2. sýning fimmtudaginn 17. nóvember klukkan 20:00

3. sýning laugardaginn 19. nóvember klukkan 20:00

4. sýning sunnudaginn 20. nóvember klukkan 20:00

5. sýning þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 20:00

6. sýning miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 20:00

 

Hægt er að panta miða þriðjudaginn 15. nóvember á milli 16-18 og svo alla sýningardaga á milli 16-18 í síma 455-8070

12 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum. 

Fleiri fréttir