Rofar til en gæti þó rignt um helgina

Spáin tekur þennan síðasta sólahring breytingum á milli klukkutíma en þó ber öllum spám saman um að heldur fari að hlýna hér á Norðurlandi vestra. Í gærkvöld þegar spá var skoðuð átti að vera þurrt um helgina en nú í morgunsárið spá þeir rigningu um helgina.

Spáin fyrir næsta sólahringinn er svohljóðandi; „Hæg breytileg átt eða hafgola og víða bjartviðri. Austlæg átt, 3-8 m/s og léttskýjað á morgun, en heldur hvassari og þykknar upp síðdegis. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast í innsveitum. Spá gerð: 30.06.2011 06:20. Gildir til: 01.07.2011 18:00.“

Fleiri fréttir