Rok og rigning

Búist er við stormi á S-landi, Faxaflóa og Miðhálendinu seint á morgun og er ferðamönnum, einkum þeim sem ferðast með aftanívagna eða í útilegu bent á að spá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir ört versnandi veðri á morgun. Búast má við hvössum vindi og vindhviðum S- og V-til síðdegis og allmikilli rigningu um kvöldið. Verulega dregur úr veðurhæð aðra nótt.

Spá fyrir Strandir og Norðurland vestra:
Norðaustan og austan 3-8 m/s, skýjað og dálítil rigning einkum síðdegis. Hægt vaxandi austanátt á morgun og þurrt að kalla, en 8-13 undir kvöld. Hiti 10 til 16 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á sunnudag:
Sunnan og suðaustan 8-15 m/s en norðaustan 8-15 um landið norðvestanvert. Rigning um allt land, einkum S-til. Hægari og úrkomuminna N-til síðdegis. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast nyrðra.

Á mánudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s, en sums staðar hvassari NV-til. Rigning um landið norðanvert en dregur úrkomu S-til. Hiti 8 til 18 stig, svalast NV-til, en hlýjast S-lands.

Á þriðjudag:
Norðan- og norðvestanátt, 8-15 m/s, hvassast við A-ströndina. Lægir NV-lands síðdegis. Skýjað með köflum, en dregur úr vætu N-til á landinu. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Sunnan og suðvestanátt, 5-10 m/s með dálítilli rigningu S- og V-til en bjartviðri annars staðar. Hlýnar í veðri.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með smávætu N- og V-til, en bjart með köflum SA- og A-lands. Hlýtt í veðri.

Fleiri fréttir