Rotþróarlosun

Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum.

Svæðið sem losunin nær til er frá Svartárdal, Austur og Vesturdal, um vestanverðan Skagafjörð að Sauðárkróki.

Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar. Athygli er vakin á því að aukagjald er rukkað fyrir endurkomu. Eins er rukkað komugjald ef að tæmingaraðila er vísað frá á staðnum.

Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa og/eða vilja afþakka þjónustuna, vinsamlegast komið þeim á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 4556000 eða á netfangið gunnarpall@skagafjordur.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir