Sædís Bára strandaði við Skagaströnd

Sædís Bára Gk 88 strandaði rétt innan við höfnina á Skagaströnd um klukkan hálf sjö í gærmorgun. Báturinn var að koma af færaveiðum þegar óhappið varð. Tveir menn voru um borð en þá sakaði ekki og sóttu menn frá björgunarsveitinni Strönd þá um borð stutti eftir slysið. Mbl.is greindi frá þessu.

Báturinn komst af strandstað á flóðinu á fjórða tímanum í dag fyrir eigin vélarafli. Ekki varð vart við leka á bátnum eftir að um fjögurra tonna afla bátsins hafði verið landað í seinnipartinn í gær stóð til að  botn bátsins yrði myndaður til að athuga hvort allt sé í lagi með hann.

 

Fleiri fréttir