Safna brjóstahöldum í tengslum við Kvennahlaupið
Hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið þann 16. júní nk. en hlaupið verður á um 90 stöðum um allt land. Á Norðvesturlandi eru hlaupastaðir víða eins og á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hólum, Varmahlíð, Hofsósi, Fljótum og á Siglufirði.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Rauði krossinn og Sjóvá standa fyrir söfnun á brjóstahöldum og öðrum undirfötum í tengslum við hlaupið en árlega velja skipuleggjendur Kvennahlaupsins eitt málefni tengt konum til að vekja sérstaka athygli á. Í ár var ákveðið að hvetja þátttakendur hlaupsins til að gefa nærföt (s.s. brjóstahöld) í fatasafnanir hjálparsamtaka. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum þá skilar nærfatnaður sér síður í hefðbundnum fatasöfnunum en annar fatnaður. Margir átti sig einfaldlega ekki á því að eftirspurn sé eftir þessum fatnaði.
Söfnuninni var hleypt af stokkunum í gær en þá mættu Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram í handknattleik og nýkjörinn leikmaður ársins í N1 deild kvenna, og móðir hennar Soffía Bragadóttir, til Rauða krossins til þess að gefa fyrstu brjóstahöldin. Söfnunin mun standa út júní en hægt verður að koma með fatnaðinn á söfnunarstöðvar Rauða krossins og í Sorpu en einnig verður tekið við brjóstahöldunum við rásmörk Kvennahlaupsins um allt land á hlaupadaginn.