Safnað fyrir fjölskyldu Evu Hrundar

Frá kærleiksstund á Blönduósi. Mynd: Höskuldur Birkir Erlingsson.
Frá kærleiksstund á Blönduósi. Mynd: Höskuldur Birkir Erlingsson.

Söfnun fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur hefur verið hrundið af stað en á Húni.is kemur fram að í ljósi þeirra hörmulegu atburða sem áttu sér stað á Blönduósi þann 21. ágúst síðastliðinn hafi verið opnaður styrktarreikningur til stuðnings eiginmanni hennar og börnum svo fjölskyldan þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur á þessum erfiða tíma.

„Við biðjum ykkur að senda hlýjar hugsanir og kærleik til fjölskyldunnar sem á um sárt að binda og kærar þakkir til allra sem sjáið ykkur fært að styrkja þau.
Fyrir þá sem vilja leggja söfnuninni lið þá er reikningsnúmerið 0307-26-004701, kt. 470169-1689 (Blönduóskirkja),“ segir í frétt Húnahornsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir