Safnadagurinn í Heimilisiðnaðarsafninu
Í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi verður safnadagurinn, sem er nk. sunnudag, 7. júlí, haldinn hátíðlegur með nokkuð hefðbundnum hætti, að sögn Elínar S. Sigurðardóttur, forstöðukonu safnsins. „Konur sýna hvernig tekið var ofan af og kemba og spinna ull og prjóna. Það er slegið í vef og bróderað og orkerað. Núna verðum með ókeypis aðgang en tökum við frjálsum framlögum ef einhver vill,“ sagði Elín.
Dagskráin í Heimilisiðnaðarsafninu hefst kl. 14.00 og stendur framundir kl. 17.00.