Safnasafn í Húnavatssýslu

Á fund menningar- og fegrunarnefndar Blönduósbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 30. mars s.l. mætti Auðunn Sigurðsson og útskýrði fyrir nefndinni hugmynd hans og  Berglindar Björnsdóttur að safnasafni, hvaða húsnæði myndi henta og hvað þetta muni koma til með að kosta.

Ákveðið var á fundinum að fyrsta skrefið væri að sjá hvað margir safnarar hefðu áhuga að setja safnið sitt eða söfn á þetta safn. Ingibergur Guðmundsson frá Menningarráði Nl. vestra sem einnig var á fundinum sagði frá því að kominn væri vísir að samstarfi minni safna og setra í Húnavatnssýslum.

Fleiri fréttir