SAH Afurðir birtir verðskrá fyrir lamba- og kindakjöt
Á vef Húna hefur verðskrá SAH Afurða verið tekin saman og hækkar lambakjöt um tæplega sjö prósent og er þá miðað við verðið í fyrra með uppbótargreiðslum sem greiddar voru fyrr á þessu ári. Annað kindakjöt lækkar á sama hátt um 30 prósent.
Álagsgreiðslur eru í boði á lambakjöt, hæst tíu prósent í viku 36, átta prósent í viku 37, sex prósent í viku 38 og þrjú prósent í viku 39. Ekki er verður greitt álag á annað kindakjöt. Á vef Landssamtaka sauðfjárbænda má finna töflu með þeim meðalverðum sem komin eru.