SAH afurðir og Lárus Ægir í Landanum

Landinn leit við á Blönduósi og Skagaströnd í gærkvöldi. Þá voru SAH afurðir á Blönduósi heimsótt en þar fer fram ýmiskonar vinnsla á sláturúrgangi til að draga úr mengun og að auka verðmætasköpun. 

Svokölluð fituskilja er í þróun hjá sláturhúsinu sem skilur fituna úr blóðinu en fitan rann hér áður útí sjó. Markmiðið með fituskiljunni er fyrst og fremst til að minnka mengun, segir Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri í samtali við Landann, en einnig aukin verðmætasköpun en verið að skoða hvort hægt sé að nýta fituna m.a. í biodisel. Verkefnið fékk styrk frá Nýsköpunarsjóði.

Þá var spjallað við Lárus Ægi Guðmundsson á Skagaströnd sem stofnaði sjóð, Minningarsjóð um hjónin frá Garði og Vindhæli, sem hefur það hlutverk að stuðla að menningarstafsemi á Skagaströnd í víðu samhengi. Einnig styður sjóðurinn við bakið á þeim sem hafa átt við langvarandi veikindi að stríða og þeim sem hafa lent í fjárhagslegum erfiðleikum. Lárus Ægir hefur einnig haft ýmis önnur verkefni fyrir höndum samfélaginu til heilla. Lárus Ægir kemur við sögu þegar 21 mín. er liðin af þættinum.

Hér má horfa á þáttinn.

Fleiri fréttir