Sala á kindakjöti meiri í sumar en á sama tíma í fyrra
Sala á kindakjöti í ágúst sl. var 642 tonn á landsvísu, en í sama mánuði 2013 var salan 621 tonn. Miðað við sama ársfjórðung og 2013, þ.e. júní til ágúst, var salan 3,4% meiri en 2,4 % minni miða við 12 mánaða tímabil, september til ágúst. Þetta kemur fram á vef Landssamtaka sauðfjárbænda.
Fram kemur að 12 mánaða markaðshlutdeildin er þannig að alifuglakjöt er í 1. sæti (32,1%), kindakjöt í 2. sæti (26,7%), svínakjöt í þriðja (24,3%), svo nautakjöt (14,7%) og loks hrossakjöt (2,3%). Heildarsala á innlendu kjöti dróst saman um 4,3% á tímabilinu.
Ofangreindar tölur miðast eingöngu við heildsölu afurðastöðva á innlendu kjöti, innflutt kjöt er ekki talið með en ekki var flutt inn neitt lamba- eða kindakjöt fyrstu sjö mánuði ársins 2014. Hinsvegar kemur fram að veruleg aukning sé innflutningi á öðru kjöti, einkanlega nautakjöti.
Útflutningur var 73 tonn í ágúst, samanborið við 131 tonn í ágúst 2013. Með útflutningi er heildarafsetning lamba- og kindakjöts 2% minni fyrstu átta mánuði ársins 2014 miðað við sömu mánuði 2013.
Birgðir í ágústlok, við upphaf sláturtíðar, voru 1.304 tonn, eða 239 tonnum meira en í lok ágúst 2013. Þar af eru 1.140 tonn af framleiðslu ársins 2013.