Samantekt um þjálfara allra 1. deildarliða í fótbolta
Nú er búið að ganga frá ráðningu þjálfara hjá öllum 1. deildar liðum í fótbolta fyrir komandi keppnistímabil. Stefán Arnar Ómarsson gerði fróðlega samantekt um þjálfara liðana fyrir tindastol.is en þar segir jafnframt að reynsla þeirra sé gríðarleg og að þarna séu engir aukvisar á ferð.
Hér má sjá lista yfir þjálfara deildarinnar og sem birt var á heimasíðu Tindastóls:
- BÍ/Bolungarvík
- Þjálfari: Jörundur Áki Sveinsson: Fæddur 1971 (40 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 1996 með Stjörnunni (m.fl.kvk),þá 25 ára.
- Þjálfarferill: Stjarnan (kvk) 1996-1997, Breiðablik (kvk) 1998-2001,2007, Ísland U-21 (kvk) 2000-2001, Ísland A-lið (kvk) 2002-2003,2005-2006, Breiðablik 2002-2003, Fram 2004, Stjarnan 2005-2006, FH 2010-2011 (aðstoðarþjálfari)
- Fjölnir, Reykjavík
- Þjálfari: Ágúst Þór Gylfason: Fæddur 1971 (40 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2010 með Birninum, þá 39 ára.
- Þjálfaraferill: Björninn 2010-2011, Fjölnir 2010-2011 (aðstoðarþjálfari), Fjölnir 2011
- Haukar, Hafnarfirði
- Þjálfari: Ólafur Jóhannesson: Fæddur 1957 (54 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 1990 með FH, þá 33 ára.
- Þjálfaraferill: FH 1990-1991, 1995, 2003-2007, Þróttur R 1992, Haukar 1993, Skallagrímur 1997, ÍR 2002, Ísland A-lið 2008-2011.
- Höttur, Egilsstöðum
- Þjálfari: Eysteinn Húni Hauksson: Fæddur 1974 (37 ára):
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2011 hjá Hetti, þá 37 ára.
- Þjálfaraferill: Höttur 2011
- ÍR, Reykjavík
- Þjálfari: Andri Marteinsson: Fæddur 1965 (46 ára),
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2007 hjá Haukum, þá 42 ára.
- Þjálfaraferill: 2007-2010, Víkingur R, 2010, ÍR 2011
- KA, Akureyri
- Þjálfari: Gunnlaugur Jónsson: Fæddur 1974 (37 ára):
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2009 með Selfoss, þá 35 ára,
- Þjálfaraferill: Selfoss 2009, Valur 2010, KA 2011.
- Leiknir, Reykjavík
- Þjálfari: Villum Þór Þórsson: Fæddur 1963 (48 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 1998 hjá Þrótti, þá 35 ára.
- Þjálfaraferill: Þróttur 1998, Haukar 2001, KR 2002-2004, Valur 2005-2009, Keflavík 2010-2011, Leiknir R 2011.
- Tindastóll, Sauðárkróki
- Þjálfari: Halldór Jón Sigurðsson: Fæddur 1983 (28 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2011 hjá Tindastól/Hvöt þá 28 ára.
- Þjálfaraferill: Tindastóll/Hvöt 2011, Tindastóll 2011
- Víkingur, Ólafsvík
- Þjálfari: Ejup Purisevic: Fæddur 1968 (43 ára):
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2001 hjá Val, þá 33 ára.
- Þjálfaraferill: Valur 2001, Víkingur Ó 2004-2011
- Víkingur, Reykjavík
- Þjálfari: Ólafur Þórðarson: Fæddur 1965 (46 ára).
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 1999 með ÍA, þá 34 ára
- Þjálfaraferill: ÍA 1999-2006, Ísland U-21 2003, Fram 2007, Fylkir 2009-2011
- Þór, Akureyri
- Þjálfari: Páll Viðar Gíslason: Fæddur 1970 (41 árs):
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2006 hjá Þór, þá 36 ára.
- Þjálfaraferill : Þór 2006- 2011
- Þróttur, Reykjavík
- Þjálfari: Páll Einarsson: Fæddur 1972 (39 ára)
- Byrjar meistaraflokksþjálfun 2008 með Hvöt, þá 36 ára.
- Þjálfaraferil: Hvöt 2008, Fylkir 2009 (aðstoðarþjálfari), Þróttur R 2010-2011