Sameiginleg barnaverndarnefnd á Norðurlandi vestra
Á stjórnarfundi SSNV fyrir skömmu voru lagðar fram niðurstöður starfshóps þar sem lagt er til að sameiginleg barnaverndarnefnd verði starfrækt á Norðurlandi vestra. Í starfshópnum áttu sæti Magnús B. Jónsson sveitarstjóri svf. Skagastrandar, Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri svf. Skagafjarðar og Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra.
Framkvæmdastjóri SSNV starfaði með hópnum auk þess sem félagsmálastjórar sveitarfélagana komu að vinnunni auk formanna barnaverndarnefnda A-Hún og Skagafjarðar. Niðurstöður starfshópsins eru í formi tillögu að samstarfssamningi sveitarfélagana um sameiginlega barnaverndarnefnd auk tillagna að verklagsreglum nefndarinnar sem unnin var af Jóni Björnssyni félagsráðgjafa og fyrrverandi félagsmálastjóra Akureyrarbæjar.
Stjórn SSNV samþykkti tillögu starfshópsins og mun senda tillögurnar til umsagnar sveitarfélagana þar sem óskað verður formlegs umboðs þeirra til þess að stjórn SSNV skipi í nefndina á grundvelli fyrirliggjandi tillögu.