Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar í öðru sæti í 7 manna bolta

Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar hreppti annað sætið í síðari hluta Íslandsmótsins í 3. flokki karla 7 manna bolta sem fór fram á Hvammstanga um sl. helgi en einungis fimm lið voru skráð til keppni í sumar. Fyrri hluti mótsins var spilaður í Hveragerði dagana 9. – 10. júní sl.

Samkvæmt heimasíðu Hvatar stóð liðið sig með ágætum og endaði í öðru sæti með 15 stig en sigurvegari keppninnar var lið BÍ/Bolungarvíkur og varð um leið Íslandsmeistari í þessum flokki með 24 stig.

 

Fleiri fréttir