Sameining setra þjónar ekki tilgangi

Verkefnisstjórn um könnun á hagkvæmni og ávinningi þess að sameina náttúrusýningar Hafíssetursins og Laxasetursins í eitt húsnæði hefur skilað af sér lokaskýrslu. Niðurstaða verkefnisstjórnarinnar er sú að það þjóni ekki tilgangi að sameina þessi tvö setur.

Skýrslan var lögð fram á fundi byggðarráðs Blönduósbæjar á þriðjudaginn. Helstu rök fyrir niðurstöðu verkefnastjórnarinnar eru eftirfarandi:

  • Sýning Hafíssetursins er næstum öll á íslensku og að mestu leyti lesmál á spjöldum.
  • Hönnun og standsetning hugsanlegs viðbótarhúsnæðis er of kostnaðarsöm.
  • Endurnýjun sýningar Hafísseturs frá grunni er mjög kostnaðarsöm.
  • Sýningar Hafísseturs og Laxaseturs hafa báðar skýra náttúrutengingu en eiga að öðru leyti ekki margt sameiginlegt.

Í verkefnastjórninni voru Arnar Þór Sævarsson, fyrir hönd Blönduósbæjar, Jón A. Snæbjörnsson, fyrir hönd Laxasetursins, Katharina Schneider, fyrir hönd Þekkingarsetursins og Ingibergur Guðmundsson. Verkefnið fékk styrk frá Vaxtarsamningi síðastliðinn vetur.

Fleiri fréttir