Samfestingurinn hefst á morgun
Á morgun 2. mars hefst í Laugardalshöllinni hið árlega Samfés-festival sem núna heitir Samfestingurinn en hana sækja krakkar félagsmiðstöðva úr efstu bekkjum grunnskóla landsins. Hátíðin er alla jafna fjölmenn og mikið um dýrðir.
Lagt er upp úr því að hátíðin sé að öllu leyti vímu- og reyklaus og samkvæmt upplýsingum frá félagsmiðstöðinni Friði í Skagafirði verður hart tekið á ef upp koma tilfelli þar um. Samfés hefur gefið út reglur um klæðaburð sem gilda á viðburðunum til að allrar siðsemi verði gætt.
- Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
- Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
- Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
- Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum.
Á meðfylgjandi myndum frá Samfés er fyrirmyndar klæðaburður hjá piltum og stúlkum sýndur.
Hægt er að sjá nánar um dagskrá hátíðarinnar HÉR