Samfylkingin kynnir betri stjórnmál

Sameiginlegur félagsfundur Samfylkingarfélags A-Húnvetninga, Blönduósi og Samfylkingarfélags Skagastrandar verður haldinn í fundarsal Samstöðu á Blönduósi, nk. þriðjudag 22. febrúar kl. 17:00 en þar verður til umfjöllunar skýrsla umbótanefndar Samfylkingarinnar og efling innra starfs flokksins.

Á fundinum verður fjallað um skýrsluna, tillögur sem þar koma fram og leiðir til að efla innra starf flokksins og aðstandendur fundarins að nú sé tækifæri til að koma á framfæri hugleiðingum og hugmyndum um flokksstarfið.

Á fundinn mæta Sigrún Jónsdóttir framkvæmdarstýra, Dagur B. Eggertsson varaformaður, Margrét Björnsdóttir formaður framkvæmdastjórnar og Guðbjartur Hannesson velferðaráðherra.

Það segir í tilkynningu frá fundahöldurum að æskilegt væri að fundargestir hafi kynnt sér skýrslu umbótanefndarinnar sem birt er á vef flokksins - xs.is

Fleiri fréttir