Samfylkingin með kjördæmisþing í NV-kjördæmi

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi heldur kjördæmisþing laugardaginn 12. janúar kl. 11-16 í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi en þar verður gengið frá framboðslista fyrir alþingiskosningar. Einnig verður haldið stefnuþing um tillögur málefnanefnda fyrir landsfund.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á kjördæmisþingið og skoða tillögur málefnanefnda á heimasíðu landsfundar Samfylkingarinnar, www.landsfundur.is. Þar er hægt að kynna sér ítarlega allar framkomnar tillögur, bæði frá málefnanefndum og einstaklingum auk þess sem þar liggja frammi helstu upplýsingar.

Fleiri fréttir