Samgönguminjasafnið fékk hæsta styrkinn

Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði stofn- og rekstarstyrkjum fyrir árið 2012 á dögunum til átta aðila, alls að upphæð 10,3 milljónir. Alls bárust 17 umsóknir þar sem óskað var eftir rúmum 30 milljónum króna í styrki.

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsti eftir umsóknum með umsóknarfresti til 24. september og úthlutaði styrkjum á fundi sínum 9. október sl. Eftirtaldir aðilar fengu styrk:

  • Samgönguminjasafn Skagafjarðar                                        2.300.000
  • Spákonuhof, Skagaströnd                                                     2.000.000
  • Selasetur Íslands, Hvammstanga                                         2.000.000
  • Textílsetur Íslands, Blönduósi                                               1.500.000
  • Kakalaskáli ehf., Skagafirði                                                    1.000.000
  • Grettistak ses., Húnaþingi vestra                                            500.000
  • Félag áhugamanna um uppbyggingu Riishúss, Borðeyri      500.000
  • Nes listamiðstöð ehf., Skagaströnd                                        500.000

Samkvæmt fundargerð var lögum um vanhæfi nefndarmanna einstakra umsókna fylgt við afgreiðslu. Ekki verður um sérstaka úthlutunarathöfn að ræða að þessu sinni.

Menningarráð Norðurlands vestra skipa sveitarfélögin á Norðurlandi vestra.  Á starfssvæði Menningarráðsins eru eftirtalin sveitarfélög: Akrahreppur, Blönduósbær, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.

Samkvæmt heimasíðu SSNV er Menningarráð  samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir menningarmál og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Norðurlandi vestra samkvæmt ákvæðum samningsins og hafa eftirlit með framkvæmd hans.

Fleiri fréttir