Samningur um hitaveitu til Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd og Rarik undirrituðu samning um lagningu hitaveitu til Skagastrandar þann 30. desember sl. Sveitarstjórn Skagastrandar lítur á fyrirhugaða tengingu við hitaveitu sem mikið framfaraskref fyrir byggðina og að með því opnist ýmsir möguleikar fyrir fjölskyldur og fyrirtæki auk þess áætlaða sparnaðar í orkukostnaði sem næst með nýtingu jarðvarma til húshitunar.
Samkvæmt heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar mun Rarik leggja stofnæð og dreifiveitu um byggðina á Skagaströnd og tengingu við hitaveitu Blönduóss. Sveitarfélagið greiðir fast gjald til Rarik en með framlagi sveitarfélags og sérstöku framlagi á fjárlögum ríkisins hefur arðsemi af veitunni verið tryggð.
Þegar framkvæmdum lýkur verður um eina veitu að ræða með veitusvæði sem nái yfir það svæði sem hitaveitan á Blönduósi gerir nú ásamt því sem við bætist með lagningu hitaveitunnar til Skagastrandar. Þar af leiðandi verður ein gjaldskrá fyrir allt veitusvæðið.
Pípukerfi fyrir ljósleiðara
Gert er ráð fyrir að fyrstu hús munu tengjast veitunni haustið 2013 og að öll hús hafi möguleika á tengingu haustið 2014. Rarik hefur þegar boðið út efni til veitunnar og mun í framhaldi af gerð samningsins staðfesta pöntun á efni. Verklegar framkvæmdir verða boðnar út á nýju ári og munu skiptast í þrjá megin verkhluta:
Lagningu nýrrar stofnæðar frá Reykjum að Blönduósi sem verði unnin á árinu 2012,
lagningu stofnæðar frá Blönduósi til Skagastrandar á fyrri hluta árs 2013 og
lagningu dreifikerfis um byggðina á Skagaströnd sumarið og haustið 2013.
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samið um að lagt verði pípukerfi fyrir ljósleiðara samhliða lagningu hitaveitunnar og opnar það nýja möguleika í framtíðinni á flutningi stafrænna gagna fyrir heimili og fyrirtæki sem tengjast veitunni.
Að sögn Sveitarstjórnar mun aukinn kostnaður fyrir hverja húseign fylgja umræddum breytingum en haldinn verður kynningarfundur í Fellsborg 5. janúar nk. kl. 17.30 þar sem samningurinn verður kynntur fyrir íbúum og það sem af honum leiðir.