Samningur um Smábæjaleika framlengdur

Knattspyrnudeild Hvatar og Arion banki hafa framlengt samstarfssamning til tveggja ára um að Smábæjaleikarnir árin 2013 og 2014 beri nafn bankans og verði áfram Smábæjaleikar Arion banka.


Á heimasíðu Hvatar kemur fram að Arion banki verður áfram einn af aðalstyrktaraðilum mótsins ásamt SAH Afurðum ehf. Samningsaðilar hófu samstarf sitt til reynslu í eitt ár á síðasta móti en hafa nú ákveðið að halda áframhaldandi samstarfi áfram til næstu tveggja ára hið minnsta.

„Knattspyrnudeild lýsir mikilli ánægju sinni með samninginn enda Smábæjaleikar Arion banka að festa sig í sessi sem eitt af stóru mótunum á landsbyggðinni ár hvert,“ segir á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir