Samningur um sóknaráætlanir landshluta
Í siðustu viku var undirritaður samningur um sóknaráætlanir landshluta sem felur í sér ákveðnar breytingar á úthlutun fjármagns frá ríkinu til atvinnu,- byggða- og menningarmála í hverjum landshluta fyrir sig. Þar með eru verkefnin Sóknaráætlanir landshluta, Vaxtarsamningar og Menningarsamningar sameinuð í einn samning.
Heildarfjárhæð samninganna er ríflega 550 milljónir króna fyrir þetta ár en til viðbótar mun mennta- og menningarmálaráðuneytið leggja til fjármagn til áframhaldandi reksturs menningarmiðstöðva á Austurlandi og Suðurlandi. Þá munu nokkrar sértækar fjárveitingar renna inn í sóknaráætlanir einstakra landshluta.
„VIð undirbúning að samþættingu vaxtarsamnina og menningarsamninga við sóknaráætlanir komu fram ákveðnar efasemdaraddir, sérstaklega úr menningargeiranum. Einhver hræðsla við að heimamönnum væri ekki treystandi til að ráðstafa og forgangsraða fjármagni til menningarmála. Ég er þess fullviss að þetta er ástæðulaus ótti,“ sagði Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands Íslenskra sveitarfélaga, í ávarpi við undirritun hins nýja samning.