Samstaða býður félagsmönnum greiðslumiða á Flugleiðahótel

Stéttarfélagið Samstaða ætlar að bjóða félagsmönnum sínum til sölu greiðslumiða fyrir gistingu á Flugleiðahótelum í vetur  frá 1. október  til 30. apríl 2012. Flugleiðahótelin eru átta talsins en verðin eru mismunandi.

 

Hótelin sem um ræðir eru  Icelandair Hótel, Natura og Iceland Hótel Keflavík þar sem verð fyrir tveggja manna standard herbergi án morgunverðar er kr. 11.500 og Iceland Hótel Akureyri, Hérað, Klaustur, Flúðir, Hengill og Hamar þar sem verðið er kr. 10.300- fyrir tveggja manna standard herbergi án morgunverðar. Félagsmenn sjá sjálfir um að bóka gistingu.

Leyfilegt er að taka með sér börn í herbergi án þess að greiða aukalega ef ekki þarf aukarúm en fyrir aukarúm greiðast kr. 3.500. Miðarnir verða til sölu á skrifstofum Samstöðu á Blönduósi og Hvammstanga, sem veita nánari upplýsingar.

Fleiri fréttir