Samstaða um helstu hagsmunamál Húnvetninga

Eitt meginmarkmið verkefnisins Húnvetnings er að koma helstu hagsmunamálum Austur-Húnvetninga á framfæri við stjórnvöld.  Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur á fundum sínum fjallað um helstu styrkleika, veikleika, áskoranir og tækifæri svæðisins og íbúa. Samstaða er um það meðal sveitarfélaganna að brýnustu verkefni næstu missera séu á sviði atvinnu- og samgöngumála. Austur-Húnavatnssýsla hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi og mikilvægt er að setja mikinn kraft í atvinnuþróun og byggðaaðgerðir.

Markmið Húnvetninga er stuðla að fjölbreyttum störfum og atvinnulífi í samræmi við Stefnumótandi byggðaáætlun og ætla að sækja stuðning stjórnvalda við þá sókn. Í því felst meðal annars að byggja upp sterka segla í ferðaþjónustu í Austur-Húnavatnssýslu og fjölga opinberum störfum, bæði staðbundnum og án staðsetningar. Mikilvægt er að fylgja skýrri atvinnustefnu og auka tiltrú fjárfesta og fjármálastofnana á verkefnum í sýslunni.

Samstaða er um að leggja áherslu á að framkvæmdum við Þverárfjallsveg um Refasveit og Skagastrandarveg frá þjóðvegi 1 að Laxá verði kláraðar fyrir árslok 2022, en hönnun vegarins er hafin. Þá leggja sveitarstjórnirnar áherslu að auknu fé verði varið til að endurbætur og bundið slitlag á tengivegi á árunum 2020-2024. Tengivegir í sýslunni eru um 270 km og eru um 170 km þeirra malarvegir. Hálendisvegir eru um 165 km og eru þeir alfarið malarvegir, þ.m.t. Kjalarvegur. Heilsársvegur um Kjöl myndi skapa mikil sóknartækifæri í atvinnumálum.

Til að bæta öryggi vegfarenda er lögð áhersla á endurbætur á hringtorgi við Blönduós og að Blönduósflugvöllur geti þjónað sjúkraflugi með viðunandi hætti. Þá er samstaða um að tryggja fjármagn í hafnarframkvæmdir á Skagaströnd og sjóvarnir í sýslunni, en miklar skemmdir urðu á hafnarmannvirkjum í óveðrum vetrarins og því liggur meira á framkvæmdum en áður var talið. 

Áætlað er að fulltrúar sveitarfélaganna fundi með þingmönnum og ráðherrum um helstu hagsmunamál Húnvetninga í sumar. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á sameining.huni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir