Samstarf milli sveitarfélaga
Eins og fjallað hefur verið um standa yfir hitaveituframkvæmdir á Skagaströnd. Talsvert rask fylgir þeim, meðal annars við Hólaneskirkju. Þar þurfti að laga planið eftir lagningu hitaveituröranna, eins og fram kemur á huni.is.
Unnu bæjarstjórnarmenn úr bæjarstjórn Blönduósbæjar, þeir Ágúst Þór Bragason og Kári Kárason, hörðum höndum um helgina við að lagfæra planið.
Þeir félagar ásamt kirkjuráðsmanninum og meðhjálparanum Steindóri Haraldssyni náðust á mynd í gær er þeir voru væntanlega að kanna grunninn fyrir sameiningu sveitarfélaga á svæðin, segir á Húnahorninu, en þaðan er myndin fengin.