Samstarfssamningur sveitarfélaganna um málefni fatlaðra undirritaður
Á föstudag var undirritaður á Siglufirði samningur sveitarfélaganna tíu sem mynda byggðasamlag málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Nýi samstarfssamningurinn byggir á eldir samningum sem sveitarfélögin í Húnavatnssýslum, Skagafirði og Siglufirði hafa haft við ríkið um rekstur málefna fatlaðra allt frá árinu 1999. Frá og með áramótum er málaflokkurinn færður með lögum frá ríki til sveitarfélaga. Skylt er að sveitarfélög sem hafa færri en 8.000 íbúa myndi með sér samlag um reksturinn. Á þessum tímamótum stækkar samstarfssvæðið og tekur nú auk Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps til Fjallabyggðar allrar, þ.m.t. Ólafsfjarðar, Skagabyggðar, Skagastrandar, Blönduóss, Húnabyggðar og vestur-Húnaþings. Þá bætast tveir nýliðar í klúbbinn: Dalvíkurbyggð og Bæjarhreppur í Strandasýslu. Með þessu telur samstarfssvæðið 11.550 íbúa. Notendur þjónustunnar eru á annað hundrað talsins. Rekstrarumfang þjónustunnar í byggðasamlaginu er í krónum talið áætlað tæpar 400.670.000 kr árið 2011 þar af ríflega 183 milljónir til starfseminnar í Skagafirði.
Ritað var undir samninginn í nýju og glæsilegu húsnæði Iðju-dagvistar á Siglufirði sem vígt var í tilefni dagsins