Samstarfsverkefni Draumaradda norðursins og Óperu Skagafjarðar
http://www.youtube.com/watch?v=RlHwIwyDgMc Ópera Skagafjarðar og Draumaraddir norðursins munu frumsýna óperuna Phantom of The Opera í Miðgarði á Sæluviku Skagfirðinga 1 mai nk. Verður þessi heimsfræga ópera sýnd í nýrri leikgerð Guðrúnar Ásmundsdóttur.
Sýningin hefst á því að áhofendur finna sig stadda uppi á háalofti í Convent Garden Óperunni í London. Er þar kona nokkur að leita í 200 ára gömlum leikmunum, sem lent hafa þar, og gleymst í hirðuleysi, eftir að hin sögulega sýning á Óperunni Hannibal var leikin þar við húsið. Á frumsýningunni gerðust hræðilegir atburðir. Kristalsljósakróna hrundi niður á sviðsgólfið og morð voru framin því óperudraugurinn lék þar lausum hala á sínum tíma. Söngþyrstir uppvakningar taka að birtast í ryk gráma þessara annarlegu húsakynna. Og fá þeir nú loksins að syngja eftir 200 ára þögn. Konan sem þar birtist í leit sinni að fornum leikmunum er leikin af Margréti Ákdadóttur og uppvakningar og draugar með sjálfan Óperudrauginn í fararbroddi sem leikinn verður af stórsöngvaranum Michael Jón Clarke og er hans heittelskaða leikin af Alexöndru Chernyshovu.
Ópera Skagafjarðar hefur vakið mikla athygli fyrir dirfsku og dug þar sem hún hefur sett upp í Skagafirði og sýnt La Traviata og Rigoletto, tvær af þekkstustu og erfiðustu óperum sögunnar og gert það með miklum sóma. Alexandra setti upp í samstarfi við aðra tvær stuttar óperur haustið 2009. Draumaraddir norðursins hafa verið starfræktar í tvö ár og hafa þegar vakið athygli fyrir sönggæði, skemmtilegt lagaval og almennan metnað í verki.
Alexandra Chernyshova hefur verið aðaldriffjöðrin í Óperu Skagafjarðar og Draumaradda norðursins og hefur tekist að innleiða nýjar víddir í tónlistarflóru á Norðurlandi vestra. Leikkonan Guðrún Ásmundsdóttir hefur verið Alexöndru innanhandar með leikstjórn og uppsetningum óperanna og verður hún einnig leikstjóri í Óperudraugnum.
Óperudraugurinn verður sýndur þrisvar sinnum á eftirfarandi stöðum:
Frumsýning:
Óperudraugurinn í Miðgarði, Skagafirði
Sunnudaginn 1. maí kl. 16:00
Óperudraugurinn í Tjarnarbíói, Reykjavík
Laugardaginn 7. Maí kl. 20:00
Óperudraugurinn í Hofi-Hamraborg, Akureyri
Sunnudaginn 15. maí kl. 20:00
Miðasala á www.midi.is