Samtök ungra bænda gefa út myndbönd
Um síðustu helgi var haldinn aðalfundur Samtaka ungra bænda í Úthlíð í Biskupstungum. Í tilefni af því hafa Samtökin sett í sýningu þrjú myndbönd sem snúa öll að vitundavakningu um íslenskan landbúnað. Tilgangur þeirra er að fólk kynni sér íslenskan landbúnað og mikilvægi hans.
„Hérna áður voru Íslendingar landbúnaðarþjóð. En sú kunnátta sem var við lýði hefur smá saman tapast. Fólki í sveitum fækkar, krakkar eru hættir að fara í sveit á sumrin og fjarlægð á milli þéttbýlis og dreifbýlis er orðin frekar skuggaleg. Samtök ungra bænda hafa lagt sitt af mörkum til að brúa þetta bil. Við höfum verið með framhaldsskólaverkefni þar sem við heimsækjum skóla og tölum við ungmenni um landbúnað á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Nýverið hlutu Samtök ungra bænda 150.000kr.- styrk frá Æskulýðssjóði fyrir verkefnið, en aðeins ungt fólk kemur að þessari vinnu, allt frá klippingu á myndböndunum til kynningar í skólum, og allt er þetta unnið í sjálfboðaliðastarfi.
Tengla í myndböndin er að finna hér fyrir neðan:
http://youtu.be/Ds0aWqQWZd0
http://youtu.be/Ki0oEETMlu0
http://youtu.be/0U5hmsqynpY